Gallað próf...
ég fór í gær og fékk niðurstöðurnar úr áhugasviðsprófinu sem ég tók á þriðjudaginn og ég verð að segja að niðurstöðurnar komu mér ekkert á óvart. Þetta var svokallað SDS próf og niðurstöðurnar eru þannig að maður fær einkunnir sem raðast niður á sex mismunandi stafi og hver stafur táknar eitthvað persónueinkenni hjá manni. Mínar niðurstöður voru: S A , þar sem S stendur fyrir Social, A fyrir Artistic og E fyrir Entrepreneur (man ekkert hvernig þetta er stafað en þið skiljið mig). So far so good, ég var alveg sáttur við þetta þar sem að mér finnst gaman að hjálpa fólki (social), finnst gaman að semja klámvísur (artistic) og mig langar að opna mína eigin búð þar sem ég sel DVD myndir sem enginn hefur heyrt um.
En svo fór að kárna gamanið þegar námsráðgjafinn rétti mér lista yfir störf sem þykja samræmast mönnum eins og mér, þ.e.a.s. menn sem eru með SAE kóðann eða eitthvað mjög líkt (SEA, ASE eða AES). Þegar ég leit yfir þennan lista af störfum sem áttu að henta mér ákvað ég að þetta próf væri meingallað. Mig langar að nefna nokkur störf bara af handahófi og leyfa ykkur að dæma um hvort að þessi störf eigi við mig.
Módel (as in Fashion)
Galdramaður
Danshöfundur
Skósölumaður
Hljómsveitarstjórnandi
Snyrtifræðingur
Stílisti
Leikskólastjóri
Ehh..... ég held að ég fari í upptökupróf á þessu áhugasviðsprófi... þetta gekk greinilega ekki vel.


10 Comments:
BAHAHAHAHAHA! Þetta yrði eitthvað mental leiksóli sem að þú fengir að stýra! :D
Ég vildi bara óska þess að þetta allt væri grín en svo er ekki. Þetta eru actual störf sem ættu að henta mér vel. Ég er strax farinn að semja dans og söngvamynd um tómat í tilfinningarkreppu sem hittir þunglynda agúrku. Þetta er svona nett blanda af Cats og Rómeó og Júlíu. Þau enda saman í hamborgara!
Eins og ég hef alltaf sagt, Viggó mín, þá ertu soldil kelling. Hllærð eins og stelpa, slærð eins og stelpa... need I say more?
Ég sé þig alveg fyrir mér vera walking the catwalk og posing the poses... just do it!!
Sko, maður á ekki að taka þessu störf alvarlega, heldur þau svið sem maður hefur áhuga á.
Eitt af efstu störfunum mínum var bókasafnsfræðingur. Sérðu það fyrir þér?
Þín niðurstaða er þó skárri en mín úr þessu prófi. Þú hefur þó eitthvað að velja úr og galdramaður hljómar soldið spennó...
Ég var R (realistic) og A (artistic) og þegar betur var að gáð ... þá var það ekki hægt og engin störf í boði
Þetta var dagurinn sem ég komst að því að ég er EKKI TIL.
Ef þú ert ekki sáttur við þína útkomu ... skaltu bara gleyma þessu prófi. Ég gerði það :)
MIg er farið að langa að taka þetta próf...
Ég vil þakka öllum fyrir stuðningin í gegnum þessa miklu krísu sem þetta áhugasviðspróf er.
Lilja: Þú ert víst til, þú ert bara mjög sérstök.
Esther: Þú yrðir kickass bókasafnsfræðingur, ég sé þig fyrir mér sem nokkurs konar Conan the Librarian.
Ásta: Ég ætla að láta þig alfarið um módel bransann og bíð bara spenntur eftir 17. maí. Þú ættir endilega að drífa þig í þetta áhugasviðspróf. Það kæmi þá líklega í ljós að þú ættir best heima sem ljósmóðir, bikerbitch eða jafnvel veðurfræðingur!
Magnús: Ég hef mikinn stíl.... hann er bara djúpt falinn, ég geng alltaf um í stílfærðum brókum sem Svavar Örn hjálpar mér að velja.
Gummi: Hvað í fjandanum er leiksóli??? Varstu kannski að reyna að segja leikskóli??? Þú ert heppinn að ég hef unnið svolítið með fötluðum og lesblindum.... annars hefði ég aldrei skilið þig!
I dress myself!
No you don't....
dang...
Post a Comment
<< Home