Lygar í auglýsingum!!!!!!!!!!!!!
Það var logið að mér um helgina..... reyndar er það bara karmað að bíta mig til baka en engu að síður var logið að mér um helgina. Ég sá nefnilega auglýsinguna nýju (eina af þeim) frá DV þar sem trén eru að tjá sig um hvað þau vilja verða stór og mikil og verða blaðsíður hjá DV. Ok... ég geri mér grein fyrir því auglýsingar ljúga oft en aldrei hefur verið logið jafn gróflega að mér og þarna.
Maður hefði nefnilega haldið að þegar að þessu blessaða DV blaði var breytt í helgarblað þá hefði fólkið sem stendur að þessu blaði meiri tíma til að sinna sínu starfi og meiri tíma til að gera hlutina VEL.
Þvílíkt og annað eins sorpblað hef ég aldrei séð og ég legg til að DV noti smáauglýsingarnar á síðum blaðsins til þess að auglýsa eftir "blaðamönnum" sem geta skrifað á íslensku. Ekki það að ég þykist vera einhver undradrengur íslenskrar tungu en ég er þó skömminni skárri heldur en þetta. Og kannski í leiðinni þeir taki sig til og skipti út lesblinda prófarkarlesaranum því hann er alls ekki að gera sig.
En vitiði hvað mesta vitleysan er.... það að þetta helvítis blað sendi mér bréf þar sem þeir biðja MIG um að borga ÞEIM pening sem ég skulda þeim síðan ég var síðast áskrifandi hjá þeim (og það var fyrir 2 árum síðan)..... og ég greiddi upp þessa skuld fyrir einu ári síðan. Mér finnst það svolítið merkilegt að rukkunarbréfið frá þeim er mun betur skrifað heldur blaðið sjálft. Einhvern veginn átti ég von á því að það myndi birtast einhver stór rumur á borð við Magnús Ver heima hjá mér, haldandi á hafnaboltakylfu og með miða sem stæði á:"Ég er að rukka fyrir Dagblaðið!"


2 Comments:
Heyrðu, bróðir mömmu (skilvísasti maður í heimi) lenti líka í þessu. Fékk bara allt í einu einhverja fáránlega háa rukkun. Algjört bull!
Finnst DV farið út á ansi hálan ís í von um að bjarga fjárhagnum.
Þetta er spes.... ég fer bráðum að búast við bréfi frá Intrum!
Post a Comment
<< Home