Næstum búinn.....
Dýrð sé drottni.... þetta er alveg að vera búið þetta skóladæmi. Ég skilaði fyrstu ritgerðinni í gær, kláraði nr. 2 í dag og stefni á að ljúka þessari síðustu á morgun (eða í kvöld ef ég nenni). Prófin kláruðust fyrir tæpri viku síðan og þau gengu svona upp og ofan. Ég er nokkuð bjartsýnn á að ég hafi náð Aðferðafræðinni en Kvikmyndasagan gæti farið á hvorn veginn sem er. Annað hvort hef ég rétt náð eða rétt fallið. Fjölmiðlafræðinn er "in the bag" eins og menn segja (nema að kennarinn sé eitthvað bitur yfir því að ég skili ritgerð 2 vikum á eftir áætlun og felli mig). Ef allt gengur að óskum mun ég útskrifast 24. júní.... jibbí!
En hvað mun svo gerast í framtíðinni??? Jah... ég ætla að byrja á því að kíkja í frumsýningarteiti hjá henni Ástu annað kvöld til að fagna því að myndin hennar verður sýnd á Skjá Einum á morgun (kl.20.00). Ég fattaði reyndar um daginn að teitið hennar er á sama tíma og úrslitaleikurinn í meistaradeildinni þannig að ég vona (hennar vegna) að vinir hennar hafi ekki gaman af fótbolta.... annars mun verða fámennt teitið.
Á laugardaginn er ég að fara á The DaVinci Code í boði Sony Ericsson og ég hlakka mikið til þess. Verður fínt að fá að líta nýjan síma og sjá efnilega mynd frítt (tala nú ekki um ef Sony tímir að blæða á mig pínu poppi)


15 Comments:
Ég mun fara með opnum huga að sjá þessa mynd. Mér fannst bókin mjög góð og vona bara að myndin verði ekki slæm. En það væri alveg eftir Hollywood að taka eitthvað fallegt og eyðileggja það. Sjáðu bara hvernig farið var með Önnu Nicole Smith!
Ein lengi og við erum að tala um Önnu Nicole Smith...Viggó, þú mátt skila Alien safninu mínu við tækifæri.
PARTÝ 24 JÚNÍ
ú ú ú ú...er mér boðið..?
Vorum við ekki að tala um mig?
Auðvitað vorum við að tala um þig Ásta mín...
En Hulda mín, ég ætla ekki að halda partý 24. júni ef þú ert að fiska eftir því!!!!
Viggó ...ÉG ætla að halda partý um helgina. Á ekki að mæta til mín? :)
Djamm á miðvikudagskvöldi ... það klikkar aldrei.
Btw takk fyrir farið heim, ég held að skakklappi hefði aldrei meikað það að hlaupa á eftir strætó.
En Viggó ... er það ekki Hafnarfjallið hjá okkur í sumar? Ég er til um leið og fóturinn er kominn í lag :Þ
Esther mín.... þar sem þú átt núna heima erlendis (austfirðir=útlönd) og ég er fátækur námsmaður hef ég hreinlega ekki efni á flugfarinu. Ég verð samt hjá þér í anda... amk vínanda!
Skakklappi.... ég sagði að ég skyldi einhvern tímann príla upp á Hafnarfjallið... en það verður ekki fyrr en Íslendingar komast á Hm í fótbolta.
sem sagt aldrei...
Ég er Wonderwoman og ekkert getur stoppað mig. Ég hef fulla trú á hæfileika mínum - my convincing-powers.
Við erum að fara á Hafnarfjallið ... jafn vel þó ég verði að draga þig þangað upp með svipunni minni.
swoooosssshhhhh
OG BTW ég hef fulla trú á að Íslendingar komist á HM í fótbolta ... þó það verði kannski ekki alveg í nánustu framtíð.
Ertu aaalveg viss um að þú viljir bíða eftir því - gætu verið einhverjir áratugir í það. Við gætum endað líf okkar sem gigtveika, áttræða fólkið sem dó úr áreynslu á leiðinni upp á toppinn.
Hmmm, það kæmist örugglega í blöðin ;)
Nono.. ég er með hann frátekinn í sambandi við hvernig við deyjum... og það er mikið meira spennandi en að skakklabbast upp á eitthvað fjall.
Viggó... um leið og það hlýnar þá reyni ég að lokka mömmu úr bílskúrnum.. ég vil ekki hafa það á samviskunni að hún forkalist... og þá getum við farið að leira.
Á: Ég er klár í leirinn hvenær sem er.... en já ég er sammála því að það er ekki gott að henda mömmu þinni út í gaddinn... við búum nú einu sinni í forgarði Helvítis!
Stundum kallað Hekkenfeld.. af ástsælum skáldum þessarar þjóðar.
Post a Comment
<< Home