eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

9.6.06

I have a dream.....

9.júni 2006
Ármúli 31

Kæru vinir, við erum saman komin hér til að fagna stóru skrefi í mannkynssögunni. Of lengi hafa þjóhnappar okkar þurft að sitja á sætum sem eru ekki verðug til að vera bæli fyrir flækingshunda. Of lengi hafa karlmenn þessa heims þurft að standa upp frá spennandi knattspyrnuleikjum til þess að ná í bjór en hafa í leiðinni misst af marki, rauðu spjaldi eða flassara. Of lengi höfum við sætt okkur við þetta ástand en ég segi hingað og ekki lengra.
Ég á mér draum um að einn góðan dag, geti karlmenn þessa lands setið í stólum sínum og liðið eins og þeir sitji á heilu fjalli af beinlausum hvolpum.
Ég á mér draum um að einhvern daginn getum við náð okkur í kaldan bjór án þess að þurfa að standa upp frá spennandi fótboltaleik!
Ég á mér draum um að það sé til stóll sem að er í senn dúnmjúkur og geymslurými fyrir köld drykkjarföng.
Kæru vinir, draumar geta ræst. Þessi stóll er til og frá og með deginum í dag mun ég setjast niður í hann og ég mun ekki standa upp aftur. Ég mun breiða út boðskaps hins heilaga LaZboy þar til allar stúlkur og drengir heimssins munu sitja í svona stól. Dýrðardagur, lofið Allah. Dýrðardagur, blessi okkur Jesús. Amen, Halelúja, yfir og út!

7 Comments:

At 19:08, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju... ertu þá einnig kominn með þvaglegg eða er stóllinn svipaður þeim sem Hómer hannaði??

 
At 01:34, Anonymous Anonymous said...

Er það þess vegna sem þú ert hættur að svara símanum... just too comfy ?

 
At 07:31, Anonymous Anonymous said...

Voða þarf nú lítið til að gleðja þig. En til hamingju og bara svo þú vitir það, þá átt þú eftir að þurfa að slást við mig það um hver situr í honum þegar ég kem í heimsókn:)

 
At 16:20, Blogger Gummi said...

Það verður ekki tekið af þér, þú ert nautnaseggur. ;)

 
At 22:07, Anonymous Anonymous said...

ENNN...
er hann með borði til að hægr sé að háma í sig í leiðinni??

 
At 23:14, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með'ann ... ég ætla að mæta til þín fljótlega og fá að mát'ann ... kannski líka þegar úrslitaleikurinn verður spilaður, hmmm ... interesting idea

Áfram Holland !!!

 
At 08:15, Blogger V said...

Ég er að reyna að vinna í því að koma þvagleggnum fyrir!!! Lengi lifi nýji stólinn minn!!!

 

Post a Comment

<< Home