Klíka?!?
OK, ég er einn af þeim gamaldagsgaurum sem finnst að fólk eigi að komast áfram á sínum eigin verðleikum en ekki útaf því hverja það þekkir eða hverjir foreldrar manns eru. Núna er ég í þeirri stöðu að ég er alvarlega farinn að leita mér að nýju starfi og það verður að segjast eins og er að það er ekki mikið um bitastæð störf fyrir sagnfræðinga með brennandi áhuga á fjölmiðlun. Eftir að hafa kolfallið á hæfnisprófi fyrir Mbl þá ákvað ég að setja þann draum aðeins á hilluna og reyna fyrir mér annars staðar um stundar sakir.
Nú er staðan hins vegar sú að bróðir minn sem virðist vera með sambönd og vini alls staðar (enda gallharður sjálfstæðismaður, ojbara) segist geta reddað mér vinnu nánast hvar sem er (þar á meðal á Mbl.) bara með því að tala við rétta fólkið. Kallið mig fífl en þetta finnst mér einhvern veginn vera rangt. Mér finnst að ef ég fæ einhverja svona sérmeðferð þá er ég að stela starfinu frá einhverjum sem hefur haft mikið fyrir því að fá þetta starf og er jafnvel mun hæfari í starfið heldur en ég. En kannski er ég bara að troða mér fram fyrir einhvern sem þekkir ekki alveg eins valdamikið fólk og hann brósi minn.
En hvað finnst ykkur fáu sálum sem lesið bloggið mitt??? Á ég að halda áfram að reyna að troða mér áfram á eigin verðleikum eða á ég að þiggja frítt far með sjálfstæðishraðlestinni?
kv.
V - daðrandi við bláu höndina!


5 Comments:
Notaðu potið... það er þó byrjunin. Svo eftir það geturu potað þér sjálfur;)
Það er enginn sem segir að þú sért ekki að koma þér áfram á eigin verðleikum... ert bara að þiggja góðsemi og greiða fólks til að komast þangað sem þú ætlar þér.
Ef ég væri ekki búin að nýta mér það... þá væri ég ennþá að sjúga puttann og hefði ekkert gert.
Og svo er annað... hugsaðu um þig sjálfur, því það mun enginn annar gera það!
Ég mæli með poti, þannig komst ég inn hjá Skjáeinum á sínum tíma. Kærasti systur minnar þekkti einhvern þar. Byrjaði í einhverju skítastarfi á skítavöktum en ákvað að stick with it og hamast. Endaði með því að ég fékk að gera það sem mig langaði að gera á þeim tímum sem hentaði mér.
Þetta er allt spurning um að bara komast með tærnar inn, þó það sé með hjálp. Þú kemur svo sjálfur til með að ýta þér alla leið...
Sammala sidustu raedumonnum... thu tharft ad komast i almennilega vinnu til ad geta sannad thig... thadan muntu haekka thig upp af eigin verdleikum... og ef thad virkar ekki tha veistu ad thu ert einskis nytur og verdur ad sofa thig a toppinn.
Ég veit að ég er einskis nýtur og þess vegna hef ég verið að reyna að sofa mig á toppinn. Málið er bara það að sökum þess hve lélegur ég er í rúminu þá er það ekki að skila mér miklum árangri. Þá er bara eitt ráð eftir og það er að stela hundinum frá einhverjum forstjóra og reyna svo að kúga starf út úr honum!
Post a Comment
<< Home