eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

30.6.06

Markaðsvæðing menningar?!?

Ég er búinn að vera að lesa Draumalandið eftir Andra Snæ og ég verð að segja að þetta er alveg fínasta skemmtun að lesa þessa bók. Ég ætla ekki að vera að predika neitt efni bókarinnar (þar sem að fleiri en einn lesandi þessarar síðu nennir hreinlega ekki að hlusta á predikanir um náttúruvernd og hálendið).

Það er samt eitt í bókinni sem ég er búinn að vera mikið að spá í undanfarið. Í bókinni sér Andri það sem leið til "bjargar" bændum landsins að einstök bóndabýli verði duglegri að markaðssetja sig. Besta lambakjötið frá Rauðanesi, besta svínakjötið frá Þúfu II og svo framvegis.

En ég fór að spá varðandi það, afhverju að miða þessa markaðssetningu eingöngu við bændastéttina? Afhverju drögum við ekki þessa miklu markaðsvæðingu inn í önnur svið eins og t.d. menningu og sögu. Eins og mér er illa við að segja þetta... afhverju gerum við ekki eins og Bandaríkjamenn? Amerísk saga er markaðsvara, fólk getur keypt sér eftirlíkingar af sjálfstæðisyfirlýsingunni, hattinum hans Lincolns og fólk myndi eflaust greiða morðfé fyrir að fá að gista eina nótt í herberginu á Watergate hótelinu þar sem einn mesti skandall amerískrar sögu varð til.

Afhverju gerum við ekki svona??? Við gætum t.d. selt gistinætur í Höfða. Fyrir utan það að þetta sé mikilvægur staður í samtímasögunni (sem gæti laðað að söguviðundrin) þá á víst líka að vera mikill draugagangur þarna sem gæti laðað að sér einhverjar týpur á borð við Magnús Skarphéðinsson. Hugsiði ykkur bara auglýsinguna:"Eyddu nótt í Höfða og andaðu að þér þeim anda sem sveif yfir vötnum hjá Reagan og Gorbachev, reyndu bara að lifa af nóttina!" Þetta væri vissulega möguleiki en við gætum gert svoooooooo mikið betur.

Hver myndi ekki vilja eiga t.d. snærisbútinn sem kom Jóni Hreggviðssyni í vandræði og startaði þannig einni mestu ævintýrasögu íslenskra bókmennta? Það ætti að vera tiltölulega auðvelt og ódýrt í framleiðslu. En afhverju ættum við að hætta þar, við gætum farið hamförum í þessum minjagripa bransa. Ég veit að ég væri til í að eiga eftirlíkingu af Þjóðminjasafnssverðinu (sem ég man ómögulega hvað heitir í augnablikinu).

Hvað með leikfangaframleiðslu??? Við gætum farið af stað með leikfangalínu þar sem allar gömlu víkingahetjurnar okkar fengju sér með ferð. "Jólagjöfin í ár er Gunnar á Hlíðarenda (bogi og brennandi hús selt sér), og ekki gleyma sérstakri safnara útgáfu af Agli Skallagrímssyni, nú með auknu blóði, stærri öxi og útgröfnu horni fyrir mjöð" Þetta er eitthvað sem ég myndi pottþétt kaupa! Og fyrst að við erum komin út í leikföngin, hvað með litlar útgáfur af t.d. þorskastríðinu. Það væri hægt að framleiða landhelgisgæslu skip með togvíraklippur að gera breskum togurum lífið leitt.

Málið er það að við þurfum greinilega að selja sögu okkar og menningu betur því við getum ekki öll lifað á áli (þó svo að Esther dafni ágætlega á því!)

9 Comments:

At 11:42, Anonymous Anonymous said...

díses hvað þú ert vitlaus

 
At 12:10, Blogger V said...

eh... já! Takk fyrir þessa hnitmiðuðu ábendingu, ég mun taka þetta til athugunar.

 
At 12:34, Blogger Esther said...

Hr./Fr. Nafnlaus: Þetta var svakalega djúpt hjá þér - að ég tali nú ekki um frumlegt. Lifir án efa innihaldsríku og spennandi lífi.

Viggó: Þetta er svo aaaalgjörlega rétt hjá þér drengur minn! Af hverju í ósköpunum erum við ekki lööööngu farin af stað í einhverju svona? Þetta er gullnáma ef rétt er að þessu staðið. Þarna er líka komin hugmyndir fyrir þig. Þú tekur bara hagnýta markaðsfræði í HÍ og með sagnfræðina í bland, startar þessu. Munt græða á tá og fingri!

Muna svo að bjóða Esther sinni í kampavín og kavíar ;)

 
At 21:29, Blogger Gummi said...

Alltaf jafn gaman að því þegar anonymous einstaklingar koma og skilja eftir svona skilaboð en eru of stupid til að finna út úr því hvernig á að skrifa nafnið sitt...

Byrjaðu bara með fyrirtæki sem skellir sér í að gera þetta. Hefur þú eitthvað betra að gera, Viggó minn;)?

 
At 08:19, Blogger V said...

Neh.... eiginlega hef ég ekkert betra að gera nema að horfa á gráu hárin mín dreifa sér um kollinn minn. En segðu mér Guðmundur, hvernig var á Hróarskeldu? Voru Axl Rose og félagar jafn slappir og fréttir herma????

 
At 10:30, Blogger Gummi said...

Þeir voru jafnvel verri, eftir að hafa loksins drullast á sviðið eftir klukkutíma...

Tool, Placebo, og Kashmir voru lang best. Deftones voru líka góðir, chino kann bara ekki að syngja live, sem er soldið fyndið.

 
At 21:47, Anonymous Anonymous said...

Mér finnst thú líka vitlaus... vildi bara ekki vera fyrst til ad segja thad. Gott ad einhver annar fann thad hjá sér ad brjóta ísinn.

 
At 22:14, Anonymous Anonymous said...

Og það merkilega var... það var ekki ég!

 
At 12:15, Blogger V said...

Freyja!!!! Ég bjóst við meiru af þér..... ég hélt að við værum búin að koma koma okkur upp svona one for all and all for one fíling. En NEI... þetta reynist vera One for herself and fuck the rest. Ég get ekki sagt annað en að ég er sár, mjög sár. Ég bjóst við þessu frá Ástu en ekki þér!

 

Post a Comment

<< Home