Heilasellur óskast.....
Ég hef nú séð margar atvinnuauglýsingar á síðustu vikum en þessi sem hún Esther benti mér á fyrr í dag er án efa ein af þeim undarlegri:
Prentun og frágangur
Töffari óskast!
Við leitum að karli eða konu til að annast og stjórna prentun og frágangi í litlu og vaxandi fyrirtæki. Góð laun fyrir rétta töffarann. Starfið er laust nú þegar.
Góð laun í boði fyrir rétta töffarann??? Hvers konar fyrirtæki er þetta eiginlega, verða menn nú að vera töffarar til að geta fengið vinnu við að prenta??? Ef ég ætti fyrirtæki þá myndi ég ganga skrefinu lengra þegar ég væri að auglýsa eftir starfsfólki.
Útgáfufyrirtæki
Einkaritari og aðstoðarmaður óskast
Útgáfufyrirtækið V publishing Inc. sem hefur gefið út metsölubækur á borð við "Snati, holdsveiki hundurinn", "Pabbi, afhverju blæðir mömmu?" og "Heimsendir er þegar V hentar" auglýsir lausar stöður til umsóknar.
Einkaritari
Staðan sem um ræðir er einkaritari eiganda V publishing. Auglýst er eftir konum á aldrinum 20-29 ára og verða þær að hafa litla þekkingu á hlutum eins og jafnrétti og kynferðislegri áreitni. Stór brjóst og þrýstinn rass skilyrði og einnig er æskilegt að umsækjendur taki sig vel út í skólabúning. Umsækjendur verða vigtaðir í viðtali (fyrst líkamsþyngd og svo hvert brjóst vigtað fyrir sig) og verður umsókn að miklu leyti metin út frá því. Öllum umsóknum verður svarað (hafnanir verða afgreiddar með blautri tusku)
Aðstoðarmaður
Staðan sem um ræðir er aðstoðarmaður eiganda V publishing. Auglýst er eftir karlmanni á aldrinum 25-35 ára. Á meðal starfa sem umsækjandi þarf að geta sinnt er: Skreppa í vínbúð, kaupa í matinn og halda hægindastól V heitum án þess að skemma rassfarið. Tekið er fram að aðstoðarmanni má ekki semja vel við einkaritarann. Einnig þarf umsækjandi að vera ófríðari en V svo að V líti betur út í samanburði.
Hver vill sækja um svona starf???? Ég veit amk að ég mun ekki vera hæfur í þetta prentarastarf vegna skorts á töffaraskap en ég vona að þeim gangi vel með James Dean karakterinn sem þau ráða.


9 Comments:
Hmmm, ég fékk einu sinni vinnu á skrifstofu þar sem ég hafði nýlokið skrifstofunámi. Nema hvað, ég fór útí sjoppu og keypti vindla, fór með rúmfötin í hreinsun, bílin í dekkjaskipti og svo náttúrulega í Ríkið reglulega... enda gekk ég út einn daginn. Hélt ég ætti að sjá um bókhald og þessháttar en neibb...
Flott, þú hefur reynsluna... drífðu þig nú á vigtina... eða þá að ég get skotist á Hvanneyri um helgina og tekið með mér vigt.
Það er nú sveimérþá gott að þú fórst ekki á þá hálu braut að sækja um töffarastarfið... way out of your league!
Hilsen fra Køben
Hehehe.... ég gerði mér grein fyrir því að þetta væri ekki rétta starfið fyrir mig. Gangi þér vel þarna úti og ef þú sérð Lars Von Trier viltu þá sparka í hann fyrir að gera leiðinlegar myndir?
Verður maður ekki bara að vera töffari yfir höfuð ef maður ætlar eitthvað í þessum skítaheimi?
Ef svo er þá get ég líklega bara farið á örorkubætur og orðið einn af rugluðu köllunum sem labba á milli fólks og biðja þau um að anda ekki svona hátt því það skemmi ósonlagið.
Ekki slæm hugmynd...
Einn af rugluðu köllunum ?? GAUR!! Þú ert eini ruglaði kallinn!
Annars hressi ég uppá Lars vin okkar ef ég sé hann.
hmmm
Maðurinn sem kallaði yfir stóran hóp af fólki: "Símon beibí" bara til þess að sanna það að TÖFFARAR gætu sagt "beibí"
Hvað varð um sjálfstraustið sem skein af þeim manni. Á ég að trúa því að Þorbjörn hafi alveg brotið þig niður?
össs össs
Post a Comment
<< Home