eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

10.8.06

Heimsendir í nánd!!!

Það er alveg greinilegt að heimsendir nálgast gott fólk! Allt í okkar umhverfi bendir á hið augljósa, þ.e.a.s. við munum öll deyja mjög hryllilegum dauðdaga innan skamms. Einungis fáum útvöldum verður hlíft og verður það þá Guð almáttugur sem mun taka hina réttlátu og góðhjörtuðu til sín.

En hvað er það sem segir mér að heimsendir sé í nánd??? Ég skal nefna nokkur atriði sem benda til heimsendis.

I.Farsóttir! Fuglaflensan (sem hefur nú legið í dvala undanfarið í fjölmiðlum) vofir yfir höfði okkar. Í hvert sinn sem maður gengur fram á dauðan fugl þá spáir fólk ekki lengur í því hvað hafi drepið fuglinn. Núna spáir fólk meira í því hvort að þetta sem drap fuglinn muni drepa það líka.

II.Stríð! Þetta er reyndar ekkert nýtt en þróun undanfarna mánuði er eitthvað til að hafa áhyggjur af. Þjóð guðs (hvorki meira né minna) stendur í stríðsrekstir gegn annarri þjóð í skjóli stríðs gegn hryðjuverkum. Það vill svo heppilega til að þessir "hryðjuverkamenn" eru að miklu leyti börn, almennir borgarar og gamalmenni. En þá spyr maður sig:"Hvernig losarðu þig við krabbamein?" Jú þú nærð krabbameininu á meðan það er bara óeðlilegar frumubreytingar, sem sagt krabbamein á bernskuárum sínum, og skerð það burt. Því saklaus börn í dag geta verið harðskeyttir hryðjuverkamenn á morgun og því er það kannski réttlætanlegt að drepa saklaus börn? Mér finnst það ekki en hvernig getur maður þrætt við þjóð Guðs??? Ef að þeir eru að þessu þá getur það varla verið rangt."I am God and I approve this message" eins og bandaríkjamenn myndu kannski segja.

III. Útsendarar hins illa halda samkomur á almannafæri og engum finnst það athugavert! Þetta er sú ástæða sem mér finnst vera hvað skelfilegust. Og NEI ég er ekki að tala um nýnasistana. Fólk virðist alltaf gleyma öllum góðu hlutunum sem Hitler gerði. Það er ekki hægt að neita því að maðurinn var snillingur. Hann tók við landi sem var hreinlega í rúst, borgir landsins voru illa farnar eftir fyrri heimsstyrjöldina, efnahagurinn var í tómu tjóni (eitt brauð gat kostað í kringum nokkrar milljónir) og allt mannlíf var á algjörum bömmer. Hitler komst til valda og reif þjóðina upp á rasshárunum og á ótrúlega skömmum tíma var hann búinn að byggja upp land sem allir gætu verið stoltir af. Því miður er það satt að það er mjög þunn lína milli snilldar og geðveiki og á endanum fór Hitler yfir þessa línu. En svo að ég víki aftur að útsendurum hins illa þá er ég að tala um trúða. Núna stendur yfir alþjóðleg trúðahátíð í Danmörku (sjá -hér-) og það segir enginn neitt við því??? Hver andskotinn er að fólki. Þarna eru trúðar frá öllum heimshornum að hittast, bera saman bækur sínar um veiku punktana á hverri þjóð og að samræma aðgerðir sínar um allsherjar árás á okkur. Hvar er "suicide bomber" þegar maður þarf á honum að halda???? Þeim sem finnst ég vera að gera of mikið úr þessu trúðadæmi er bent á að kynna sér verk og ævi John Wayne Gacy!

Megi Guð almáttugur hlífa mér og mínum!

8 Comments:

At 11:17, Blogger Gummi said...

Þýðir þetta að ég þarf ekki að leita mér að vinnu lengur?

 
At 20:17, Blogger V said...

þú getur verið prestur í sértrúarsöfnuðinum mínum!

 
At 10:01, Blogger Gummi said...

kúl! Ég er farinn að safna í predikun...

 
At 17:38, Anonymous Anonymous said...

þú ert mjög - mmm... hugmyndaríkur! Svona vægt til orða tekið..

 
At 08:22, Blogger V said...

Takk fyrir það..... var þetta ekki annars hrós?

 
At 23:22, Anonymous Anonymous said...

John Wayne Gacy er kúl og dauðinn er alltaf að nálgast... þess vegna áttu að binda enda á þetta í eitt skipti fyrir öll, fara með mér í fallhlífastökk og losna við þjáningar þessa lífs og þar að auki geturðu kennt mér um dauða þinn. Segðu svo að ég hafi ekki lausn á öllum þínum vandamálum!

 
At 15:16, Anonymous Anonymous said...

Dauðinn má koma mín vegna ... prófið er á mánudaginn.

 
At 16:51, Blogger V said...

HAHAHAHA.... örvænting hins þreytta námsmanns. Ég man þá tíð er ég var í skóla! ahhhh... good times!

 

Post a Comment

<< Home