eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

21.9.06

Bjartari tíð framundan.....



Á dögunum tilkynnti vopnaframleiðandinn BAE Systems að fyrirtækið hyggðist fara út í vistvænni vopnaframleiðslu heldur en fyrirtækið hefur stundað hingað til. Á meðal þess sem fyrirtækið hyggst framleiða eru blýlausar kúlur vegna þess að kúlur með blýi "can harm the environment and pose a risk to people" og hljóðlátari og umhverfisvænni flugskeyti. Tilgangurinn með þessum "hljóðlátari" sprengjum er að draga úr hljóðmengun. Einnig hyggst fyrirtækið framleiða handsprengjur sem gefa frá sér hættuminni reyk en aðrar handsprengjur á markaðnum.

Þetta finnst mér alveg magnað, einmitt þegar ég stóð í þeirri trú að manngæskan og góðvild manna á milli væri að deyja út þá kemur BAE fram sem framúrskarandi boðberi umhverfis- og mannverndar. Ég er alveg viss um það að þegar sá dagur kemur að Greenpeace fer að vígbúast þá munu þeir versla við BAE.

Í kjölfarið af þessu fór ég að velta fyrir mér hvort að fyrirtækið þyrfti ekki að fara að koma sér upp einhverju nýju grípandi slagorði til að fólk geri sér grein fyrir því að hér sé kominn fram á sjónarsviðið boðberi nýrra og bjartari tíma. Ég vil hér með bjóða fram mína aðstoð og nefni því til nokkur slagorð sem mér dettur í hug:

BAE - Killing you but not the earth!
BAE - Saving the environment one bullet at a time!
BAE - Silent enough for innercity combat!
BAE - Approved by Greenpeace, Eco friendly.

og síðast en ekki síst:

BAE - I can´t believe it´s not lead.

1 Comments:

At 10:49, Anonymous Anonymous said...

Hahahahaha! Ég myndi selja þeim fyrsta slagorðið. Klárt mál! :D

 

Post a Comment

<< Home