eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

2.10.06

Smá update!

Ég er kominn með nýja vinnu... Húrra fyrir því.
Ég vil þakka mömmu fyrir uppeldið, Blaðinu fyrir atvinnuna og ykkur hinum vil ég þakka fyrir allan fiskinn!

16 Comments:

At 12:44, Anonymous Anonymous said...

So long and thanks for all the fish!

 
At 14:06, Blogger V said...

Nákvæmlega!
If I had just one last wish,
I would like a juicy fish!

 
At 18:22, Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með það!!! Ég skal meira að segja íhuga það að taka niður miðann á póstkassanum sem á stendur "EKKI BLAÐIÐ" :)

 
At 19:26, Blogger V said...

Það er engin spurning að gera það. Annars myndirðu fara á mis við allar þær yndislegu greinar sem ég er búinn að safna mér í. Ég skal gefa þér eitt dæmi um grein sem mun birtast innan 3-4 vikna:
"Saurlífi á Burstafelli"
Íslenskir bændur hafa sumir hverjir tekið danska bændamenningu sér til fyrirmyndar og hafa bændrnir á Burstafelli í Vopnafirði nú "riðið" á vaðið og eru farnir að selja gistinætur í gömlum bæjarhúsum sem hafa hingað til verið nýtt sem safn. Til boða stendur að sænga einn í gamaldagsrúmi en einnig er hægt að leigja sér sauðfé til að ylja köldum ferðalöngum um nætur. Nóttin ku kosta 5000 krónur og félagsskapurinn við sauðféð kostar 3000 kr. aukalega. Í viðtali við V fréttir þá sagðist Guðni Ágústsson vera hæst ánægður með framtakssemi bændanna á Burstafelli."

Viljið þið systurnar eitthvað tjá ykkur um þetta mál????

 
At 19:53, Anonymous Anonymous said...

uhh......nei takk, býð spennt eftir fyrstu V frétt :)

 
At 21:00, Anonymous Anonymous said...

Ég myndi borga hátt í 7000 kall fyrir eina nótt með myndarlegum hrút.

 
At 22:19, Blogger V said...

Ég skal sjá hvort að Burstafells systurnar eiga eki einhvern fallega hyrndan hrút handa þér Freyja mín.

 
At 15:24, Blogger Gummi said...

Til hamingju!

 
At 17:01, Blogger V said...

Takk vinur! Þetta væri ennþá meira gleðiefni ef ég gæti hafið störf þar strax... höndla það varla að bíða til 16.okt!

 
At 18:21, Blogger Garðar said...

Til hamingju!

 
At 08:16, Blogger V said...

Ég þakka aftur.

 
At 21:54, Anonymous Anonymous said...

Dadara... fyrst að heyra fréttirnar.. gæti fjarlægð átt einhvern hlut að máli?
Því lengra sem mar er í burtu því lengur eru fréttir að berast, þó við búum á þessari hátækniöld sem er ekki lengur en örfáar nanósek að flytja gögn á milli heimsálfa (og við erum meira að segja í sömu heimsálfu... að hálfu leyti amk).

En til hamingju stráksi... seint er betra en aldrei og góðir hlutir gerast hægt.. það kom að því að EITTHVAÐ gott myndi gerast hjá þér, þó fyrr mætti vera (vá, ég er að rokka í máltækjum).

Ég held að ég sleppi niðrandi níðum um þig í þetta skiptið.. þú átt það skilið að fá frí einu sinni :D Enjoy your new job... og hey.. bara 12 dagar í það!!

 
At 08:28, Blogger V said...

Takk æðislega Ásta mín, nú skaltu bara drífa þig að gera einhverja fína bíómynd svo að ég geti skrifað fallega um hana. Jafnvel þótt þú gerir heimildarmynd um sögu niðurgangsins muntu fá toppeinkun hjá Blaðinu!

 
At 20:00, Blogger Sveinsson said...

Köttur nágrannans er andfúll.

 
At 00:01, Anonymous Anonymous said...

Vinkona mín skrifaði ritgerð um hægðatregðu sem ég var neydd til að lesa, þú mátt gagnrýna hana í Blaðinu ef þú hefur mikinn áhuga á hægðum almennt.

 
At 19:32, Blogger Gummi said...

oh he does...

 

Post a Comment

<< Home