Reiði Díónísosar.....
Ég er að velta fyrir mér hvort að ég sé sá eini sem setur spurningamerki við jólaleikritið í ár hjá Þjóðleikhúsinu?
Maður hefði haldið að um jólin væri rétt að sýna eitthvað sem bregður ljósi á hið góða í eðli mannsins, lyftir lund manns og léttir jafnvel mesta skammdegisþunglyndinu af manni. Ef ég væri þjóðleikhússtjóri (sem ég blessunarlega er ekki) myndi ég setja upp eitthvað hresst og skemmtilegt leikrit eða þá að setja upp einhverja klassík. Er ekki komið langt síðan að Jólasaga Dickens var sett upp hér heima?
Það hafa allir gaman af Dickens, fjölskyldan getur farið saman í leikhús, notið samverunnar og kynnst hinu sanna eðli jólanna.
En hvað haldiði að íslensku þjóðinni sé boðið upp á leikhúsi þjóðarinnar svona rétt fyrir jólin? GRÍSKAN HARMLEIK!!!!
Ég meina hvað er eiginlega að fólki, hvaða heilvita manni dettur í hug að setja upp grískan harmleik um jólin? Það er álíka og að gáfulegt og að vera pólverji í Frjálslynda flokknum. Ég leyfi mér að fullyrða það að voðalega fáir nema einhverjir menntasnobbarar munu leggja leið sína í leikhús til að horfa á þessi ósköp. Mér skilst að bara kostnaðurinn við sviðsmyndina hlaupi á tugum milljóna. Væri ekki nær að eyða þeim peningum í flott skegg á Ebenezer Scrooge eða til að gera draug Marleys heitins virkilega flottann.
Ég persónulega hef ekkert á móti grískum harmleikjum en ég held að þeir eigi ekki við hátíð eins og jólin. Þetta er álíka viðeigandi og prumpublaðra í jarðarför.


2 Comments:
Híhí. prumpublaðra í jarðaför.
Sammála þér með leikritið.
Ég og Gazzmaðurinn fórum í Þjóðleikhúsið og sáum nútímauppfærslu á einhverju svona svipuðu, sheikspír eða eitthvað. Og þetta gæti ekki verið leiðinlegra en það.
p.s. Ottó með jákvæðnina.
Mér fannst það gott leikrit ottó...
ps. Garðar reynir að koma með leiðindin en tekst ekki alltaf
pps. áfram grikkland! ;)
Post a Comment
<< Home