Gamall draumur að rætast!
Nú er aldeilis tilefni til að fagna. Ég er líklega að fara að dæma tölvuleiki fyrir Blaðið (ef ég verð fastráðinn) og það er bara langþráður draumur að rætast. Ég fékk á föstudaginn mína fyrstu sendingu frá Senu sem gagnrýnandi og það var stórkostlegur fengur. Í pakkanum leyndist:
Buzz!: The Big Quiz
Buzz!: The Sport Quiz
Buzz Junior Jungle Party
Smackdown Vs. Raw 2007
Sopranos
Og ekki má gleyma því að ég fékk með þessu fjórar bjöllustýripinna fyrir Buzz leikina og allir eru þessir leikir fyrir PS2. Ég var að dunda mér við að reikna þetta út um helgina og mér telst til að Sena hafi verið að enda við að GEFA mér í kringum 23.000 krónur.
Ef að ég fæ að hafa þetta sem fastan lið í Blaðinu er hægt að reikna með því að ég fái svona sendingu ca. einu sinni í mánuði (og jafnvel oftar) og mun fyrsti dómurinn fjalla um "barnaleikinn" Buzz Junior Jungle Party sem er án gríns..... virkilega skemmtilegur. Nú er ég kátur!
Það þarf greinilega lítið til að gleðja nörd eins og mig.


10 Comments:
Komdu með tölvuna heim til mín svo við getum spilað RAW vs. Smackdown!
Hvenær færðu að vita hvort þú verður fastráðinn?
Mikið er ég fegin að vera bara viðhaldið en ekki konan þín næstu vikurnar... það verður erfitt að fá athygli hjá þér!
Freyja: Spurning hvort við tökum ekki upp þráðinn í blogg-commenta tilhugalífi okkar frá því sem síðast var horfið...?
Til hamingju! Og ég meina thad svo innilega! Veit bara um eina manneskju sem verdur meira öfundsjúk en ég...
Hver er það?
Ó, honní. Til hamingju. Ekki leiðinlegt að einhver vilji borga manni fyrir að sinna köllun sinni í lífinu. ;)
Davíð.
Til hamingju Viggó minn.
Gummi: fann þig ;)
Til ham með amm... hmm.. nei úps...
Til ham með... uhh.. þetta ?
Var það útaf þessu sem þú varst að hringja í mig?
Btw, þú hringdir aldrei aftur... Töss!
Post a Comment
<< Home