eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

16.10.06

Auglýst eftir kút... var hent í djúpu laugina!

Ja hérna.... og ég sem var að búast við því að ég fengi nú einhvern aðlögunartíma til að kynnast nýju vinnufyrirkomulagi og nýjum starfsháttum. Það var svo aldeilis ekki og ég held að ég eigi fimm fréttir sem birtast í Blaðinu á morgun.

Þetta var opinberlega erfiðasti fyrsti vinnudagur ævi minnar og ég er ekki að ljúga því þegar ég segi að umfjög ur leytið var ég alveg kominn á þá skoðun að mæta ekkert á morgun og hringja bara grenjandi upp í Síma og biðja um gamla starfið mitt aftur! En ég held nú að þau muni ekki taka við mér aftur og því er það ekki valkostur.

En svo að ég víki aftur að fyrsta vinnudeginum þá var tilkynnt strax um morguninn að ég ætti að líta á þrjár fréttir: Týndar rjúpnaskyttur, snjór í Esjunni og hagkvæmni strandsiglinga. Eftir því sem leið á daginn losnaði ég sem betur fer við strandsiglinga fréttina en í staðinn bættust víð ein frétt og tvær stuttar greinar um bílaeign fræga fólksins.

Þeir sem hyggjast lesa þessar fyrstu fréttir mínar þá vil ég benda þeim á að venjulega á ég mjög auðvelt með að skrifa texta en vegna gífurlegs álags fyrsta daginn minn líta þessar greinar líklega út fyrir að hafa verið skrifaðar af 14 ára ungling.

Það er greinilega stórt stökk frá þjónustuveri Símans yfir í blaðamennskuna.

11.10.06

Ég hlakka svo til.....

Ég skil núna hvað stelpan átti við í jólalaginu þegar hún söng hástöfum "Ég hlakka svo til......". Í þessu lagi var stúlkunni hugleikið hvað tíminn var lengi að líða þegar hún var að bíða eftir jólunum. Yfir sumartímann þá var þetta ekkert vandamál en þegar líða fór nær jólum fór klukkan nánast að ganga afturábak. Ef ég man textann rétt þá var hann einhvern veginn svona:"Sumar það er satt, þá leið hér tíminn skelfing hratt, og þeir flugu hjá í snatri, já fuglarnir og sólin. En nú er þetta breytt, það bara gerist ekki neitt...."

Nú er ég ekki að segja að ég sé farinn að bíða eftir jólunum (en ég hlakka samt til þeirra, enda MIKIÐ jólabarn) en ég skil núna mun betur hvað átt er við í þessu lagi. Nú er ég að bíða eftir því að starfsdögum mínum hjá Símanum ljúki og ég sver það... tíminn hefur aldrei liðið jafn hægt!!!

Hingað til hef ég reynt að vera góður starfsmaður því mér finnst að maður eigi alltaf að gefa sig 100% í vinnuna, jafnvel þótt að þú hatir hana útaf lífinu. Ég verð að játa það að þessa síðustu daga (eiginlega alveg frá því að ég vissi að ég hefði fengið vinnuna hjá Blaðinu) þá hef ég aðeins slakað á klónni. Ég er í sannleika sagt orðinn hundleiður á því að hreinsa upp klúðrið eftir misheimska starfsmenn Símans. Margir starfsmenn Símans eru mjög klárir en því miður eru líka nokkrir sem ég myndi ekki treysta fyrir poka af þvagi.

En svo að ég víki aftur að aðalefninu þá er tíminn þessa dagana óþægilega lengi að líða. Ég lít á klukkuna á 10 mínútna fresti og þess á mili andvarpa ég og læt mig dreyma um hetjudáðir manna á borð við Bob Woodward. Ég geri mér alveg grein fyrir því að starf blaðamannsins er ekki sveipað neinum dýrðarljóma... en djöfull get ég ekki beðið eftir því að skipta um starf.

2.10.06

Smá update!

Ég er kominn með nýja vinnu... Húrra fyrir því.
Ég vil þakka mömmu fyrir uppeldið, Blaðinu fyrir atvinnuna og ykkur hinum vil ég þakka fyrir allan fiskinn!