Nei, ég er ekki dauður.....
... að minnsta kosti anda ég ennþá!
Þessi jól og aðdragandi þeirra eru búin að vera strembinn.... á miðvikudaginn fyrir jól fékk ég þær gleðifréttir að ég þyrfti að skrifa 16 blaðsíðna Vinnuvélablað... aleinn. Það þýðir að ég þurfti að sitja sveittur alveg fram að jólum við að reyna að finna eitthvað efni til að fylla blað um eitthvað skíta viðfangsefni sem mér gæti ekki verið meira sama um. Það er óhætt að segja að þetta blað hafi aðeins drepið í jólaskapinu mínu.
Jólin sjálf eru búin að vera í rólegri kantinum en svo á morgun byrjar hasarinn aftur. Þar sem ég er ekki enn búinn að klára þetta helvítis vinnuvélablað þarf ég að byrja á því strax í fyrramálið og svo þegar það er búið get ég farið að skjóta upp flugeldum.
Ég er búinn að verða mér út um fullt af flugeldum frá Landsbjörgu, KR og Gullborg og svo á morgun mun ég skjóta þessu öllu upp og svo skrifa um herlegheitin.... vonandi að það geti aðeins létt lund minna draugfúlu samstarfsmanna.....
Vonum bara að ég missi ekki auga í þessari vitleysu.... en ef svo fer þá er þetta undarlegt vinnuslys fyrir blaðamann.

