eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

22.11.06

Víðáttufælni á klósettinu....

Þeir sem þekkja mig vita að salernismál eru mér mjög hugleikin. Kúkur og piss mun vera eitt af mínum uppáhalds umræðuefnum (að minnsta kosti segir fólk það) og því langar mig að deila með ykkur smá reynslusögu af salernisferðum.

Ég er maður sem kann að meta næði. Ég á ekki í neinum vanda með að pissa fyrir framan fólk (ólíkt sumum) en mér finnst þó þægilegra að geta sinnt kalli náttúrunnar í ró og næði. Þegar ég vann hjá Símanum var óskrifuð regla að þegar að fólk þurfti að hleypa brúnum (þ.e.a.s. kúka) þá notaði það fatlaðra klósettið. Með tímanum fór ég að nota það klósett í síauknu mæli til að sinna kalli náttúrunnar, hvort sem það kom úr óæðri endanum eða þeim stutta. Ég kunni virkilega vel að meta þann frið sem færðist yfir salernið þegar ég sat þar á kafi í eigin hugsunum (og skít). Þar var vítt til veggja og enginn var þar til að hlægja að blúpps-inu eða einstaka freti.

Eftir að fatlaður starfsmaður hóf störf í þjónustuverinu (þó svo að einhverjir af starfsmönnum sem voru fyrir gætu flokkast sem fatlaðir á einn eða annan hátt) fengu starfsmenn þau vinsamlegu tilmæli
að héðan í frá skyldu ófatlaðir starfsmenn ekki nota þetta frábæra salerni heldur skyldu þeir troða sér inn í þessa bása og sinna þörfum sínum þar. Þetta fannst mér súr þróun en sinnti þessum skilaboðum engu að síður.

Eftir að hafa unnið hjá Blaðinu í mánuð er ég búinn að sjá að álíka hegðun viðgengst hér, þ.e. heilbrigðir starfsmenn á líkama og sál nýta sér fatlaðra klósettið til að hleypa brúnum í meiri ró og meira rými. Um daginn ákvað ég að taka stóra stökkið og hætti mér þarna inn. Ég læsti hurðinni og settist niður.

Þar sem ég sat þarna, með buxurnar á hælunum, gat ég ekki komist hjá því að hugsa:"Vá hvað þetta er stórt og tómlegt." Einhverrra hluta vegna vakti þetta gríðarstóra klósett hjá mér óþæginda tilfinningu sem ég gat ekki losnað við. Ég hugsaði heim til vinalega klósettsins hjá Símanum og felldi tár. Sama hvað ég reyndi þá virtist ekkert ganga, óæðri endinn herptist bara saman og neitaði að skila frá sér úrgangi gærdagsins.

Ég var fljótur að forða mér þaðan út og hef ekki stigið fæti þangað inn síðan. Núna kúka ég bara í lítillli kompu þar sem ég hef varla nægt fótarými, það er stöðugur umgangur fyrir utan klósettið og ég fæ engan veginn þann frið sem ég þrái. En vitiði hvað, ég kann betur við það heldur en þetta helvítis gímald sem fatlaðra klósettið er.

20.11.06

Gamall draumur að rætast!

Nú er aldeilis tilefni til að fagna. Ég er líklega að fara að dæma tölvuleiki fyrir Blaðið (ef ég verð fastráðinn) og það er bara langþráður draumur að rætast. Ég fékk á föstudaginn mína fyrstu sendingu frá Senu sem gagnrýnandi og það var stórkostlegur fengur. Í pakkanum leyndist:

Buzz!: The Big Quiz
Buzz!: The Sport Quiz
Buzz Junior Jungle Party
Smackdown Vs. Raw 2007
Sopranos

Og ekki má gleyma því að ég fékk með þessu fjórar bjöllustýripinna fyrir Buzz leikina og allir eru þessir leikir fyrir PS2. Ég var að dunda mér við að reikna þetta út um helgina og mér telst til að Sena hafi verið að enda við að GEFA mér í kringum 23.000 krónur.



Ef að ég fæ að hafa þetta sem fastan lið í Blaðinu er hægt að reikna með því að ég fái svona sendingu ca. einu sinni í mánuði (og jafnvel oftar) og mun fyrsti dómurinn fjalla um "barnaleikinn" Buzz Junior Jungle Party sem er án gríns..... virkilega skemmtilegur. Nú er ég kátur!

Það þarf greinilega lítið til að gleðja nörd eins og mig.

14.11.06

Oj bara ullabjakk.....

Í vinnunni um daginn fékk ég það áhugaverða verkefni að fjalla lítillega um vetrardagskrá sjónvarpsstöðvanna. Við fyrstu sýn virkaði það spennandi en svo þegar ég fór að skoða þetta nánar uppgötvaði ég það að þetta er bara hreinasti viðbjóður. Það er nefnilega voðalega lítið til sem heitir innlend dagskrárgerð. Nær allir "íslenskir" þættir sem eru sýndir í sjónvarpi eru íslenskar útfærslur á erlendum þáttum.
Tökum nokkur dæmi:
X-factor. Það er ótrúlegt hvað fólk nennir endalaust að gera þætti sem reyna að finna fólk sem getur sungið. Mesta gamanið hjá mér er að hlægja að laglausa fólkinu sem gerir sig að fífli þarna eða slær þá í gegn. Ég vil meina að af öllum þeim þátttakendum sem hafa tekið þátt í þessum söngkjaftæðisþáttum þá séu bara tveir einstaklingar í öllum heiminum sem hafa slegið í gegn. William Hung og Ottó!
Tekinn. Þetta er eitt mesta ripoff sem ég hef séð í sjónvarpi og þetta er verra en japönsk útgáfa af friends þar sem allir vinirnir hittast á sushi bar í staðinn fyrir kaffihús. Hann Auddi hefur gjörsamlega stolið öllu varðandi hönnun þess þáttar og meira að segja innskotinn sem koma með honum í þættinum eru höfð svarthvít eins og hjá fíflinu honum Ashton Kutcher.
Frægir í form. Þarf ekkert að segja um þann þátt en ég bíð bara eftir því að Árni Johnsen kýli Þorgrím Þráinsson því hann á það fyllilega skilið.

Eitt sem kannski er vert að benda á líka en það er hinn óstöðvandi (og greinilega ódrepandi ) Hemmi Gunn. Ég sver það, þessi maður er eins kakkalakki, alveg sama hversu oft er traðkað á honum. Það er alveg sama hvað þessi maður kemur nálægt þessa daganna, það virðist vera dautt í fæðingu.

Ég held að það væri ráð að slá allri þessari vitleysu saman í einn þátt. Þar myndi Hemmi Gunn stjórna keppni í fjöldasöng á meðan að keppendur reyna að losa sig við aukakílóin. Auddi gæti svo verið þarna og reynt að hrekkja fólk eitthvað á meðan það er að syngja.

8.11.06

Ég biðst forláts.....

Ég hef verið latur að blogga undanfarið. Fyrir því eru einkum tvær ástæður:
I. eftir að hafa skrifað allann daginn um allt frá brúnkuklefum til meintrar svindlstarfsemi BSR þá er ég varla að nenna því að setjast fyrir framan tölvuna og skrifa hugsanir mínar niður á bloggið.
II. Ótrúlega mikið álag í vinnu gerir það að verkum að eftir lok hvers vinnudags er ég hreinlega búinn á því.... þá er svolítið erfitt að fá skáldagyðjurnar í lið með sér.

Einhverjir hafa sagt að ég ætti að gefa upp hvað ég á í Blaðinu hverju sinni, það er mjög erfitt því ég veit sjaldnast sjálfur hvað kemur í Blaðinu fyrr en ég sé það á morgnanna. Því verð ég að hafna beiðni ykkar en ég mun reyna að gera skrif mín stærri og meira áberandi svo að þau verði merkt mér.

En áhugasamir geta kíkt á umfjöllun mínu um PS3 sem birtist einhvern tímann fyrir skömmu í sérblaði um Tölvur, tæki og Netið.

Ekki meira í bili,
V