eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

30.3.06

Tony Jaa

Nú kannski spyr einhver sig: "hver er þessi Tony Jaa???" Jú, þessi litli maður er einn sá allra harðasti nagli sem ég hef séð í áraraðir. Hann er lítill, rindilslegur tælendingur sem leggur stund á bardagalistir með sérstaka áherslu á Muy Thai (veit ekkert hvernig þetta er skrifað). Þeir sem hafa séð myndina Ong-Bak ættu að kannast við kauða en þeir sem hafa ekki séð hana hafa misst af miklu (nema að þeir horfi ekki á slagsmálamyndir og vilji bara sjá myndir með hvolpum og regnbogum í aðalhlutverki). Þeir sem nenna geta séð meistara Jaa að störfum hér.

Ég hef ákveðið að þegar ég verð stór vill ég verða tælendingur!

27.3.06

Ég fór á árshátíð Kópavogsbæjar í gær og ég vil ekki ræða það frekar nema fyrir utan eitt atriði sem ég get ekki hætt að hugsa um. Þannig var að ég var eins og svo oft áður með tóbak í vörinni og þurfti að fara að losa mig við það þannig að ég trítlaði inn á salerni og stóð fyrir framan vaskinn og var að skola á mér kjaftinn til þess að tennurnar á mér myndu ekki líta út eins og blettatígur. Þá tók ég eftir því að maðurinn við hliðina á mér var búinn að vera óeðlilega lengi að skoða sjálfan sig í speglinum. Þannig að ég ákveð, þar sem ég beygi mig fram yfir vaskinn, að líta til hliðar og sjá hvað hann væri eiginlega að gera. Og hvað haldiði að hafi verið það sem ég sá, það sem gjörsamlega starði beint á móti mér.... jú tittlingurinn á honum. Það var maður sem var örugglega á aldur við pabba minn (og jafnvel eldri) að PISSA Í VASKINN VIÐ HLIÐINA Á MÉR! Hvernig í ósköpunum dettur fullorðnum karlmanni í hug að pissa í vask á almannafæri!!!!!! Það voru klósett gjörsamlega alls staðar en hann ákveður í "sakleysi" sínu að pissa í vaskinn??? Ég pissaði síðast í vask þegar ég var 8 ára gamall á heimavist og var of myrkfælinn til að þora á klósettið um miðja nótt en ég myndi aldrei láta mér detta það í hug nú til dags. Ég sver það, ég á seint eftir að jafna mig á þessu.

En svo að ég minnist á eitthvað aðeins jákvæðara þá fékk ég tölvupóst áðan frá Morgunblaðinu þar sem ég var boðaður í hæfnipróf einhvern tímann í næstu viku. Ég nefnilega prófaði að sækja um sumarvinnu þar sem blaðamaður, bara svona fyrir forvitnissakir. Ég verð að játa að ég er þó nokkuð stressaður þar sem þetta próf verður metið útfrá því hversu góð tök maður hefur á þremur lykiltungumálum, íslensku, ensku og dönsku. Ég kann ekki rassgat í dönsku og mér hefur verið bent á það undanfarið af henni Esther vinkonu minni að ég tala víst frekar vitlausa íslensku. Þess vegna verð ég að segja að það eru ansi fyrirferðarmikil fiðrildi í maganum mínum en það er ekkert sem smá kæruleysi mun ekki drepa niður.

friður út!
V

20.3.06

Home sweet Gnome....

Jæja þá er maður kominn heim frá landi lýðræðis (ahem) og jafnréttis (hóst hóst) og ég verð bara að segja að þessi ferð fór alveg fram úr björtustu vonum mínum. Þar sem ég þekkti ekki eitt einasta grey sem ég fór með þá gerði ég mér ekkert rosalega miklar vonir um félagsskapinn... ég er alveg rosalega ánægður með það hvað ég hafði mikið rangt fyrir mér. Nánast hver einasta manneskja í þessari ferð var snillingur... (en hver þó á sinn hátt). Best var þó manneskjan sem er gjörsamlega málhölt á tveimur tungumálum en ég vill ekki nefna nein nöfn.

Þar sem ég er bundinn þagnarskyldu varðandi einstaka atburði ferðarinnar þá mun ég ekki fara út í nein af sóðalegu smáatriðunum en ég vill þó segja það að ég hefði aldrei getað trúað því að það væri svona gott að kúra með öðrum karlmanni heldur en Daða.

Ég set kannski einhvern tímann inn einhverjar myndir á netið en eins og málin standa núna þá nenni ég því engan veginn þar sem flest allar myndirnar mínar eru annað hvort af flugvélum eða húsum og minnismerkjum (og svo reyndar ca. 60 myndir af mér og ferðafélögunum í annarlegu ástandi).

En já... ferðin var góð og með tímanum mun hún eflaust verða enn betri í minningunni (svona þegar maður er búinn að melta einstaka atburði aðeins betur)

En að lokum vill ég segja að það er gott að vera kominn heim en ég get samt ekki beðið eftir því að komast aftur til útlanda... mér var bent á blaðamannaskóla í Köben sem væri kannski þess virði að skoða nánar... kannski að maður geti bara flúið land innan árs í skjóli æðri menntunar.

V

11.3.06

Út vil ek.....

Jæja nú er þetta loksins að skella á. Eftir að hafa hangið á þessum blessaða klaka undanfarin ár er ég loksins að komast til útlanda. Ég fer á morgun til (morð)höfuðborgar Bandaríkjanna, Washington D.C. og verð þar í viku með nokkrum samnemum mínum og kennara. Þarna úti er ætlun okkar að skoða Washington Post, Library of Congress og ýmislega fleiri merkilega staði. Einnig er það áætlun mín að endurnýja aðeins fataskápinn minn því það verður að segjast eins og er að allar buxurnar mínar pössuðu mun betur þegar ég var 15 kg. þyngri.
En áður en ég fer út verð ég að ganga frá nokkrum smáatriðum, nánar tiltekið að detta í það með vinnufélögunum á árshátíð Símans sem verður haldin í kvöld í Egilshöll. Fyrir árshátíðina ætlum við að hittast nokkrir nördarnir úr vinnunni og sötra öl og spila Tiger Woods.... ekki slæm byrjun á góðu fylleríi.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili en vill enda á þessari fínu mynd af Barða Frey í nýja fína bolnum sínum sem ég keypti fyrir hann (og var ekki nema rúman mánuð á leiðinni til landsins).

8.3.06

Barna Perri......

Ég man þegar ég var ca. 10-11 ára gamall sveitastrákur í heimavistarskóla. Þá hafði ég ennþá sakleysi mitt og ég stóð í þeirri trú að heimurinn væri góður og fallegur. Við þennan tiltekna heimavistarskóla var einn kennari að störfum sem hlaut viðurnefnið "kryppi" vegna þess að hann var með kryppu og haltraði örlítið. Ég vildi kalla hann Quasimodo en hver hlustar á 10 ára vitleysing? En dag einn þegar Kryppi átti að mæta til kennnslu sást hann hvergi og fór þá fólk að velta fyrir sér hvað hefði orðið um kallinn. Þá kom það í ljós að kappinn hafði verið rekinn og uppsagnarfresturinn hefði verið ca. 5 mínútur. Kryppi kallinn hafði nefnilega tekið upp á því að bjóða einum nemanda í íbúðina sína og gaf honum þar áfengi í þeim tilgangi að fylla unglinginn svo að hann gæti fengið smá action. Nú er kannski einhver að velta fyrir sér afhverju ég er að rifja upp svona ljóta sögu úr fortíð minni og svarið er einfalt..... KARATE KID!

Ég var nefnilega að horfa á Karate Kid myndina síðasta sunnudagskvöld á skjá einum og ég sá að þessi mynd var eins og svo margar aðrar....mun betri í minningunni. En í þessari mynd var eitt atriði sem mér fannst soldið vafasamt. Aðalsöguhetjan (leikin af Ralph Macchio) kom um kvöld að heimsækja sensei-inn sinn (lærimeistari fyrir þá sem eru ekki sleipir í asísku) Mr. Miyagi. Þá var gamli fauskurinn orðinn pissfullur og hvað gerir gamli perrinn þá... jú hann gefur unglingnum áfengi og skipar honum að drekka!!! Og það sem ég er að spá.... hvað var Ralph Macchio að spá að forða sér ekki út. Það er mín skoðun að ef eldri maður fer að hella í þig áfengi þá vill hann ekki kenna þér karate heldur vill hann gera þig að tíkinni sinni!!!!!

2.3.06

Office Space

Þessa daganna líður mér eins og ég sé aumingja greyið úr office space myndinnni sem þurfti alltaf að vera að færa borðið sitt. Ég mætti í vinnuna í gær og í mesta sakleysi mínu settist ég við borðið mitt sem ég hef hingað til átt alveg einn. Þá byrjar fólk að stara á mig eins og ég hefði gleymt að klæða mig í buxurnar aftur og spyr mig hvað ég sé að gera. Ég taldi mig vera að fara að vinna en þar sem að sumt fólkið sem ég vinn með er soldið spes ákvað ég að útskýra fyrir þeim hvernig vinnudagurinn hjá mér væri og hvað ég gerði eiginlega í vinnunni. Eftir að hafa uppfrætt almúgann þá hugðist ég hefja vinnu mína en nei.... fólk hélt áfram að horfa á mig eins og ég væri að halda því fram að jörðin væri kassalaga. Eftir dágóða stund var mér þó tilkynnt að það væri búið að færa mig og ég mætti ekki sitja lengur á borðinu mínu. Ég verð að játa að ég kom af fjöllum og vissi ekki alveg hvað ég átti að gera en ákvað á endanum að setjast á borðið mitt samt sem áður því drengurinn sem var svo heppinn að fá borðið mitt var ekki mættur til vinnu.

Eftir því sem að leið á daginn varð þessi office space tilfinning sterkari og á endanum var ég kominn alveg á það að segja faxtækinu stríð á hendur ásamt því sem mér var farinn að sýna eldfærum reykingarfólksins óeðlilega mikinn áhuga. Núna (daginn eftir) er ég kominn á nýja staðinn minn og það er ekki gaman. Ég sit úti í horni, rétt hjá dyrabjöllunni þannig að ef að einhver þarf að komast inn og móttökudaman er ekki á sínum stað, þá þarf ég að stökkva til og opna fyrir viðkomandi. Þetta kýs ég að kalla fellinguna sem fyllir þvenginn (eða dropann sem fyllir mælinn) og held ég að ég rambi á brún geðbilunar. Þannig að ef að þið heyrið gott fólk að Þjónustuver Símans hafi brunnið til kaldra kola þá skulið þið athuga hvort þið sjáið ekki Viggó litla standa þar fyrir utan með sviðið hár, brúsa af bensíni og kveikjara.