eXTReMe Tracker

V - Verðandi vitleysingur í versnandi veröld

29.3.07

Leiðarlok....

Aldrei þessu vant er ég algjörlega sammála henni Freyju minni! Maður eins og ég á ekki skilið að hafa bloggsíðu. Alveg frá því að ég hætti að slæpast í vinnunni hjá Símanum hefur þörfin fyrir að tjá mig á netinu snarminnkað... þegar ég eyði öllum vinnudeginum í að reyna að hugsa um eitthvað til að skrifa þá er ekki séns að ég nenni að gera það líka heima hjá mér á kvöldin.

Því vil ég nota þennan dag til að segja tvennt:
1. Króníkan er dauð og ég er mest hissa að hún hafi þó tórað þetta lengi.
2. Ég er hættur að blogga... læt mér nægja héðan í frá að skrifa í blöðin.

Takk fyrir samhuginn í gegnum tíðina.
V

3 Comments:

At 09:45, Anonymous Anonymous said...

Viggó minn, þetta hefur verið ánægjuleg samför (ánægjulegar samfarir?), ég þakka liðnar stundir og við sjáumst í himnaríki.

 
At 22:15, Blogger Unknown said...

Eitthvað sem þið viljið segja mér ?

 
At 00:11, Anonymous Anonymous said...

Já.... Ásta það er svolítið sem ég vil segja þér fyrir hönd okkar Freyju. Ég veit ekki hvernig ég að koma orðum að þessu þannig að ég læt bara flakka..... við Freyja höfum síðastliðið ár verið að hittast í laumi til þess að spila rommí og pressa blóm... ég vildi ekki að þú kæmist að þessu svona en það var ekki hjá því komist lengur.

V

 

Post a Comment

<< Home